4x4Húnar

4X4 Húnvetningadeild

Vafraðu um


Dagskrá 2011

Tenglar

07.02.2012 21:39

Þorrablót

Ákveðið hefur verið að gott væri að menn borguðu gjaldið fyrir þorrablótið inn á reikning félagsins 4x4 Huna  0307-26-006261  kt  620610-0540 heilar 6000 þus kr per mann eldri en 16 ára
fyrir 15 febrúar 2012.

kv stjórn 4x4 Húna.

06.02.2012 22:21

Vinnuferð

vinnuferð verður farin 10-12 feb i Ströngukvislaskála
skipuleggja röðun á gistingu á þorrablóti setja upp kaminu og fl
Kjúllasupa verður á laugadagskvöldi
kv form

05.02.2012 15:22

FUNDUR

Fundur i kvöld 5 feb kl 20;30 á Blönduósi i Björgunasveitahusinu
fundarefni  vinnuferð, þorrablót  og annað spjall.

28.01.2012 23:15

Vinnuferð

Áætlað er að fara i vinnuferð 10-12 feb i Ströngukvisl 
Buið er að festa kaup i kaminu og er ætlunin að fara með hana upp
i skála fyrir þorrablót og  ymislegt annað i leiðinni
velkomið er að koma með okkur i þessa vinnuferð.

19.01.2012 13:04

Þorrablót

Þorrablót verður haldið 17-19 feb i ströngukvislaskála
lagt verður af stað á föst og heim á sunud 
etin verður skemdur matur og sungið og spjallað fram á nótt
þáttaka er góð sem komið er 52 og er búið að loka á skráningu  húsið er löngu sprungið en við erum með lausnir á öllu
fjöldi  er svipaður og i firra sem er mjög gott.
þeir sem skráðir eru,
                             fjöldi
Jakob         Willys      2'+1
Ingvar         Willys      1+1
Bjössi        Toyota      2
Arnar          Nissan     2+2
Snævar        Isusu      2+2
Siggi T   Land rover    2+1
Stefán lögf  Toyota     2+3
Reynir       Toyota      2+1
Patrik        Nissan      2
Bjarni ottó  Toyota     2
Björn Ingi   Zusuki      3
Leifur                        1
Kreppa      Toyota     2
Þröstur       MMC      2
Timon        Toyota     2
Steinar     Econoline   2
Hörður       Toyota     4
Dóri            Musso    2
Bjarni stef   Bronco   2                         
Guðni         Toyota   2                      
                        Alls fullornir  41 og  11 börn

16.01.2012 21:01

Ljósavél í Ströngukvísl

Laugardaginn  7. Janúar fór hópur vaskra sveina frá Húnvetningadeild F4x4 með ljósavél í eigu deildarinnar í Ströngukvíslarskála.  Farið var á fimm bílum og voru að meðaltali 2 í bíl.  Ljósavélin eða Straumfríður eins og hún er kölluð þessa dagana  var í smá yfirhalningu eftir veru sína við Álkuskála en þurfti nú nauðsynlega að komast í sitt nýja heimili við Ströngukvíslarskála áður en allt færi á bólakaf í snjó. 

Lagt var af stað frá Skagaströnd upp úr kl. 9 um morguninn á þrem bílum og tók Bjarni Ottósson það að sér að dröslast með Straumfríði aftan í Toyotu en Patrik sonur hans var í fylgdarliðinu á Patrol ásamt tveimur félögum frá Strönd á Ford Econoline,  var það gert bæði í æfingaskini og eins ef öflugan bíl þyrfti til að draga ef færið tæki að þyngjast.  Félagarnir Arnar (Patrol) og Bjössi  (Toyota LC) lögðu upp frá Blönduósi nokkuð síðar en hópurinn sameinaðist upp við Blöndustíflu.   Eftir að yfir stífluna var komið gekk ferðin nokkuð vel í fyrstu en einstaka sinnum þurfti aðeins að létta undir með Toyotunni hjá Bjarna.  Það var svo einhverstaðar í námunda við Blönduvatn að Straumfríður réði sér ekki fyrir kæti og tók nokkur góð hopp og endaði auðvitað með því að snúa sig á vinstra hjóli og þurfti umsvifalaust aðhlynningar við. Þar sem Bjössi var með heilt verkstæði í farteskinu þá var nú ekki lengi verið að lappa upp á Straumfríði en nokkuð ljóst að hölt yrði hún upp frá þessu.   Tók nú að hægjast heldur á för eftir því sem færið þyngdist og á endanum var Toyota komin alfarið í spotta aftan í Ford og síðasta spölinn var Toyotan hjá Bjössa hengd framan í Ford en úr þessu var nú orðið tólf hjóla ökutæki sem silaðist áfram í átt að skálanum en aftast haltraði Straumfríður eða eigum við heldur að segja skreið á maganum því ekki náðu hjólin niður úr snjónum.

Strax er í skála var komið var hafist handa að búa um Straumfríði og koma henni sem best fyrir á nýja staðnum.   Það þurfti að bora fyrir stögum, tengja,leggja rör og kapla og margt fleira og nú kom verkstæðið hans Bjössa að góðum notum en þar leyndist ýmislegt nytsamlegt.  Þegar þetta allt var afstaðið og rafmagn komið á skálann var farið að huga að eldamennsku og þar fór Arnar fremstur í flokki og eftir ekki mjög svo langa hríð voru tvö stór lambalæri á borð borinn ásamt meðlæti.   Var nú etið og drukkið fram á rauða nótt eða þannig.  Við höfðum fyrr um daginn heyrt í Skafgirðingum tveim sem ætluðu af Kjalvegi og austur eftir og niður í Skiptabakka.  Þegar búið var að borða og ganga frá var ákveðið að vita hvar þeir væru staddir og var því gerð út sendinefnd til að fara út í bíl og kalla þá upp.  Þeir voru þá um það bil 15 km frá Skiptabakka og voru að snúa við vegna ófærðar og ætluðu að fara sömu leið til baka.  Spáð var versnandi veðri og því fylgdumst við með þeim og kölluðum þá upp síðar um kvöldið og þá voru þeir staddir við Dúfunefsfell  í blind bil og sóttist ferðalagið seint.  Var þeim boðið að hafa samband við okkur ef þá vantaði aðstoð en við heyrðum ekkert meira frá þeim og reiknum því með að þeir hafi skilað sér til byggða. 

Um nóttina hlánaði töluvert og var nú kominn töluverð bleyta í snjóinn en hann reyndist nú göróttur engu að síður og var svolítið um festur en ekkert  svo orð sé á gerandi.   Ákveðið var að rúlla suður úr og kíkja við á Hveravöllum og drekka þar kaffi en halda síðan heim á leið. Arnar og Bjössi ætluðu niður Kjalveg og Blöndudal en við Skagstrendingar ákváðum að fara niður Svínadalinn hjá Hrafnabjörgum.

Myndir hér

14.01.2012 01:04

Fundur

Fundur verður haldin i viðigerði sunnudagin 15 jan kl 20-30
fundarefni  þorrablót  og ferðir i vetur.

09.01.2012 22:50

Fundur Januar

Fyrir hugað er að halda fund á sunnudagskvöldið 15 jan kl 20-30
stefnum á að halda hann i Viðigerði er reindar ekki buin að tala fyrir þvi en ef það brekst þá verður hann á Hvammstanga Húnabraut 6
hjá form.

09.01.2012 22:36

Þorrablót

Komið sæl Og Gleðilegt árið

Nu fer að stittast að við höldum þorrablót  og við höldum það i
ströngukvislaskála helgina 17-19 februar  
það er nú bara að taka þessa helgi frá fyrir þessa athöfn.
gott er að láta mig vita með þáttöku sem first svo hægt sé að athuga með matin þótt að við séum orðin sjóuð með það er gott að fá sirka fjölda  s,8665502. Jakob ,form
Buið er að fara með rafstöðina sem var i álkuskála upp i ströngukvisl  og tengja og græja og er hun farin að framleiða rafmagn fyrir skálan. þetta virðist ætla að virka hjá okkur allt sem tilheirir varninu dælan og allt þannig að við erum i góðum málum með það

28.12.2011 02:29

Ferð annan í jólum

Fórum í ferð í Ströngukvíslarskála að morgni annars dags jóla.
Vorum við á tveimur bílum (Jakob formaður og Björn Þóris) sem fórum á undan að Skálanaum. Þar tókum við til að hita kakó og settum pönnukökur og smákökur á borð. Biðum eftir Skagstrendingum og Blönduósingum sem fóru af stað á samatíma og við. Við fórum yfir blöndustíflu en þeir fóru upp hjá Bollastöðum í blöndudal. Þegar þeir komu í Ströngukvíslarskála var þeim boðið upp á heitt kakó, pönnsur og kökur. Að kræsingum loknum héldu þeir áfram ferð sinni en við gengum frá skálanum. Síðan eltum við þá frá skálanum. Þeir tóku vegslóðan að blönduvöðum og náðum við þeim á leiðinni ókum upp með seiðisá að brúnnni. Þar skildu leiðir 3 bílar fóru heim en hinir héldu áfarm í átt að Hveravöllum (held að það hafi verið 9 bílar).
Tókst þetta með eindæmum vel og langar okkur að þakka þessum hóp kærlega fyrir komuna og samferðinna.

                           Ferðarklúbburinn 4x4 Húnar
 

24.12.2011 11:38

Jólakveðja

Óska öllum félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýu ári.
kær kveðja  stjórn  4x4  Húnvetningadeildar.
 

20.12.2011 19:19

Annar i Jólum

Annar i Jólum.
Hugmind er um að renna dagsferð inn á heiðar og athuga snjóalög
skagstrendingar hafa haft það siðastliðin ár að renna á fjöll annan i Jólum og við i 4x4 hunum erum að skella okkur með
 

    Flettingar í dag: 63
    Gestir í dag: 25
    Flettingar í gær: 56
    Gestir í gær: 21
    Samtals flettingar: 137391
    Samtals gestir: 35938
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 23:54:22

    Daskrá 2011

    Fjallaferð 28-30 januar Réttatorfa-þistareikir þorrablót 18-20 feb Gislaskáli

    Dagskrá 2011